Reykjavík - besta borgin er með stefnumörkun sem byggir eingöngu á hagsmunum íbúa í Reykjavík
Stundum eru forsendur svo stórar í efnahagslegum þáttum að þær hafa áhrif á næstum alla þætti samfélagsins. Eitt stærsta dæmið um þetta er staðsetning á Reykjavíkurflugvelli sem klífur Reykjavíkurborg í tvær skipulagsheildir og kemur í veg fyrir að hægt sé að vera með skilvirkar samgöngur, hagfellt skipulag, góð lífsgæði og sanngjarna skatta.
Takmarkanir í hagrænni uppbyggingu vegna Reykjavíkurflugvallar varðandi lofthelgi hafa markvisst hamlað eðlilegri þróun í skipulagi á stórum hluta borgarinnar sem hefur einnig haft alvarlegar afleiðingar varðandi lífsgæði. Þetta hefur skapað mikla kostnaðaraukningu í rekstri borgarinnar og stuðlað að aukinni skattbyrði á íbúa í Reykjavík.
Þetta staðfestir skýrsla Samráðsnefndar samgönguráðuneytisins og Reykjavíkurborg (sjá) sem unnin var á árinu 2007 varðandi hagræn áhrif á samfélagið ef Reykjavíkurflugvöllur verði fluttur annað. Versti kosturinn er að hafa flugvöllinn áfram með árlegum kostnaði upp á 4.3 milljarða króna. Allir kostir um aðra staðsetningu skila tuga milljarða hagrænum bata fyrir samfélagið og besti kosturinn í skýrslunni mundi skila um 38 milljörðum króna í árlegum ábata (Þetta er niðurstaða úr svokallaðri ParX-skýrslu frá 2007 og ætti að vera um 74 milljarðar á ári á núvirði).
Á þessum forsendum byggja málefnalegar áherslur hjá Reykjavík – besta borgin um að að vera með bestu samgöngurnar, besta skipulagið, bestu lífsgæðin og bestu skattana. Sá þáttur sem hefur mest áhrif á alla þessa þætti er staðsetningin á Reykjavíkurflugvelli.
Reykjavík – besta borgin er hagsmunaaðili sem einbeitir sér alfarið að hagsmunum þeirra sem búa í Reykjavík. Aðrir hagsmunaaðilar eru yfirleitt með innbyggðan kerfisgalla og vinna sjálfkrafa gegn hagsmunum borgarbúa og jafnvel þjóðarhag.
Samkvæmt landslögum fara reykvíkingar sjálfir með skipulagsvald yfir öllu landi innan marka Reykjavíkur. Kjósendur í Reykjavík geta nú sameinast um stefnu Reykjavík – besta borgin sem vinnur eingöngu fyrir borgarbúa að reykvískum hagsmunum.